Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

H109S - Evrópufrímerki 2015 - Gömul leikföng - Stakt merki úr H109- Sjálflímandi

H109S - Evrópufrímerki 2015 - Gömul leikföng - Stakt merki úr H109- Sjálflímandi

Venjulegt verð 460 kr
Venjulegt verð Söluverð 460 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Samkvæmt ákvörðun PostEurop, Sambands opinberra póstrekenda í Evrópu, eru gömul leikföng sameiginlegt þema Evrópufrímerkjanna árið 2015. Leikföngin á frímerkjunum eru dýrfirsku Dúa-bílarnir og tréönd Leikfangagerðar Akureyrar.
Tréöndin var fyrst framleidd hjá Leikfangagerð Akureyrar og Leifsleikföngum sem störfuðu á Akureyri frá 1931–1960. Leifsleikföng tóku við framleiðslunni árið 1942 og hélt fyrirtækið áfram að smíða leikföng úr tré til ársins 1960. Frumkvöðullinn að þessari leikfangagerð var Skarphéðinn Ásgeirsson. Leikföngin nutu mikilla vinsælda hérlendis en grundvöllurinn brast þegar erlend leikföng tóku að berast í auknum mæli til landsins. Á Akureyri rekur Guðbjörg Ringsted leikfangasafn í Friðbjarnarhúsi. Má þar finna fjölda leikfanga frá síðustu öld, meðal annars tréöndina.
Skoða allar upplýsingar