G41 - Gjafamappa - Íslensk myndlist I - Myndlist íslenskra einfara - 2010
G41 - Gjafamappa - Íslensk myndlist I - Myndlist íslenskra einfara - 2010
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Þótt saga íslenskrar myndlistar sé ekki löng, þá er hún afar fjölbreytt. Ekki er langt síðan athygli beindist að myndlist sjálflærðra alþýðulistamanna, svokallaðra naífista eða einfara. Á Íslandi varð naíf myndlist til sem eins konar framlenging af alþýðlegri frásagnarhefð. Myndlist af þessu tagi verður hvorki lærð né kennd og hún myndar ekki hefð í strangasta skilningi. Elstur þessara íslensku einfara er sennilega Sölvi Helgason (1820-1895), umflakkandi auðnuleysingi, sem greiddi fyrir viðurgerning á bóndabæjum með litríkum „portrettmyndum“. Ísleifur Konráðsson (1889-1972) rifjaði upp minningar frá heimaslóðum í björtum og skrautlegum olíumálverkum. Karl Dunganon (1897-1972) gerði sér ævintýralegan myndheim, uppfullan með ógnvekjandi frásagnir og draumsýnir. Sigurlaug Jónasdóttir (1913-2004) hóf að mála elskulegar og frásagnarkenndar myndir frá æskuslóðum sínum eftir að hún settist í helgan stein.
