1
/
af
1
669FDCS - Lífríki hafsbotnsins við Ísland III

Venjulegt verð
570 kr
Venjulegt verð
Söluverð
570 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Svampdýr (Porifera) eru fjölfrumungar og sér á báti meðal fjölfrumunga jarðar bæði hvað varðar byggingarlag og lífeðlisfræði. Svampdýrið á frímerkinu lifir í íslenskri lögsögu en hefur ekki fengið íslensk nafn. Latneska heitið er Mycale lingua. Fæðunám svampdýra er sérstakt vegna þess að þau hafa ekki munn líkt og önnur fjölfruma dýr. Vatn streymir inn um ótal smá op á hliðum dýrsins og þar veiða frumur (e. choanocyte) alsettar bifhárum smásæjar fæðuagnir. Á einum degi getur svampdýrið dælt nokkrum lítrum af sjó og vatni um opin og fengið næringu. Svampdýr eru að öllum líkindum elstu fjölfruma dýrin í þróunarsögunni.
Sæbjúgu (Holothuroidea) eru einn af sex ættbálkum innan fylkingar skrápdýra. Þessu fallega sæbjúga á frímerkinu hefur Hafrannsóknastofnun gefið nafnið fjólufætla (Laetmogone violacea). Nafnið vísar í fjólbláan lit þess og fjölda fóta. Sæbjúgu er að finna á hafsbotni um allan heim og eru þau víða notuð til manneldis. Ein stærsta sæbjúgnategundin við Ísland, og sú eina sem er nýtt til manneldis ber nafnið brimbútur (Cucumaria frondosa). Sæbjúgu þjóna mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar. Þau brjóta niður leifar af dauðum dýrum og önnur lífræn efni en fæða þeirra eru svif og rotnandi lífræn efni.
Skoða allar upplýsingar