Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

662FDC4 - Ungviði íslensku húsdýranna II

662FDC4 - Ungviði íslensku húsdýranna II

Venjulegt verð 1.680 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.680 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Kálfur. Kýr ganga með kálfa í rúma níu mánuði. Yfirleitt eiga kýrnar einn kálf í einu en þær geta átt tvo þótt það sé fremur sjaldgæft. Fyrsta mjólkin sem kemur úr kúnum eftir burð nefnist broddur og fær kálfurinn þennan drykk sem er nauðsynlegur ónæmiskerfinu. Kálfar fá yfirleitt ekki að sjúga mæður sínar því þá tapa bændur miklum hluta mjólkurinnar og lögun spenanna breytist þannig að nánast ógjörningur er að koma mjaltavélum á þá. Íslenskum húsdýrum og ungviði þeirra eru gerð góð skil í Húsadýragarðinum í Reykjavík sem stefnir að því að vera til fyrirmyndar í dýravernd.

Lamb. Sauðburður þykir mörgu sveitafólki vera skemmtilegasti tími ársins. Þá er veturinn á enda, daginn farið að lengja, fuglasöngur í lofti og gróður í miklum vexti. Sauðburður hefst yfirleitt fyrrihluta maí, en ærnar ganga með lömbin í um 140 daga. Íslenska sauðféð er fjörugt en viðráðanlegt og spretthörð lömbin eru eftirlæti barnanna. Hegðun íslenska fjárins er oft líkt við villifé en það aðlagast fljótt aðstæðum og hænist að smölum. Mikil vinna fylgir sauðburði. Vaka þarf yfir kindunum allan sólarhringinn meðan sauðburður stendur yfir.
Skoða allar upplýsingar