Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

653FDC1 - Villtur íslenskur gróður II

653FDC1 - Villtur íslenskur gróður II

Venjulegt verð 890 kr
Venjulegt verð Söluverð 890 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Veggjaglæða (Xanthoria parietina) er algeng flétta þar sem úthafsloftslag er mest á landinu. Hún er mjög útbreidd á Suður- og Vesturlandi. Hún vex á klettum, steyptum veggjum og stundum á trjábolum. Í fuglabjörgum getur hún litað heila klettaveggi. Veggjaglæðan er stór, oft 6-10 cm í þvermál, og þekkist best frá öðrum glæðum á greinilega blaðkenndum jöðrum sem auðvelt er að losa frá undirlaginu. Hún er mjög sjaldgæf á Norðurlandi.

Skeljaskóf (Placopsis gelida) er algeng flétta um allt land. Hún myndar sambýli með grænþörungi. Skeljaskóf var ein þriggja fyrstu fléttanna til að finnast í Surtsey eftir að eyjan myndaðist. Hún er algeng hvarvetna á landinu þar sem raka úthafsloftslagsins nýtur við en er sjaldgæf inn til landsins fyrir norðan þar sem loftslag er landrænna. Þar finnst hún hins vegar víða á háfjöllum þar sem þokur eru tíðari en á láglendi. Skeljaskófin vex á steinum, bæði basalti og móbergi, oft á smásteinum sem liggja á jörðinni.
Skoða allar upplýsingar