Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

652FDCS - Lífríki hafsbotnsins við Ísland II

652FDCS - Lífríki hafsbotnsins við Ísland II

Venjulegt verð 615 kr
Venjulegt verð Söluverð 615 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Ægisdrekka (Acesta excavata) er stór og tiltölulega flöt skel sem lifir sunnan og suðvestan við Ísland á 200-1400 m dýpi. Stærstu skeljarnar hafa mælst 17 cm að hæð og 10 cm á breidd og er þetta stærsta samlokutegundin við Ísland. Dýrið sjálft er bleikt eða appelsínugult, en skelin er hvítleit. Ægisdrekkan er oft í nábýli við kóral og kóralrif. Hún lifir á litlum ögnum sem hún síar úr vatnsmassanum. Ægisdrekkan þykir ágætur matur en hún er þó ekki nýtt eða veidd sérstaklega.

Glókórall (Madrepora oculata) er kóraldýr sem myndar harða kalkskel. Glókórall er ein af þremur kóraltegundum sem getur myndað kóralrif í sjónum hér við land. Vaxtarhraði þessara dýra er um 3-20 mm á ári, þannig að það tekur gríðarlega langan tíma að mynda kóralrif. Hér við land vex glókórall við landgrunnskantinn úti fyrir Suður- og Vesturlandi, á 200-1000 m dýpi. Á þessu svæði eru mörg kóralrif og hafa nokkur þeirra verið mynduð með neðansjávarmyndavélum. Þessi kóralrif njóta nú verndunar.
Skoða allar upplýsingar