Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

648FDC4 - Alþjóðlegt ár sjálfbærrar ferðaþjónustu

648FDC4 - Alþjóðlegt ár sjálfbærrar ferðaþjónustu

Venjulegt verð 2.000 kr
Venjulegt verð Söluverð 2.000 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Árið 2017 er ár „sjálfbærrar ferðaþjónustu“ samkvæmt ákvörðum Sameinuðu þjóðanna. Sjálfbær ferðaþjónusta er skilgreind sem sú þróun eða starfsemi í ferðaþjónustu sem ber virðingu fyrir umhverfinu og tryggir verndun náttúrulegra og menningarlegra auðlinda til langs tíma. Bláa lónið á Reykjanesskaganum myndaðist af affallsvatni frá Hitaveitu Suðurnesja í kjölfar starfsemi hennar í Svartsengi við Grindavík árið 1976. Þegar fólk fór að baða sig í lóninu kom í ljós að það hafði jákvæð áhrif á húð- sjúkdóminn psorisasis. Lónið hefur með tímanum orðið einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi. Vistkerfi þess er eitt sinnar tegundar í heiminum. Hitastigið í lóninu er 37-39°C og það endurnýjar sig á 40 stunda fresti. 

Jarðböðin við Mývatn eru staðsett í Jarðbaðshólum nálægt Reykjahlíð. Þar hafa heit jarðböð verið stunduð til heilsubótar frá landnámsöld. Boðið er upp á náttúruleg gufuböð, baðlón með heitu hveravatni og heitan pott. Mývatn er fjórða stærsta stöðuvatn landsins og heimsfrægt fyrir fjölbreytt náttúrufar og fuglalíf. Jarðmyndanir eru mjög fjölbreytilegar og víðast hiti í jörðu, enda er svæðið innan hins virka eldgosabeltis og eru eldgos tíð, hið síðasta árið 1984.
Skoða allar upplýsingar