Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

647FDCS - SEPAC - Handavinna

647FDCS - SEPAC - Handavinna

Venjulegt verð 325 kr
Venjulegt verð Söluverð 325 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Þema Sepac frímerkisins að þessu sinni er staðbundin eða dæmigerð handvinna útgáfulandsins. Myndefni íslenska frímerkisins er íslenska lopapeysan. Mynstrið á frímerkinu, „Álafoss mynstur nr. 51“, þykir einkennandi fyrir íslensku lopapeysuna, en það hannaði Astrid Ellingsen. Útlit hennar mótaðist líklega fyrir áhrif erlendra prjónahefða sem bárust til landsins í gegnum tímarit um hannyrðir og tísku. Grænlensk þjóðbúningamynstur hafa einnig verið nefnd til sögunnar og sömuleiðis norsk prjónamynstur. Þegar íslenskar konur tóku að yfirfæra erlend prjónamynstur og útfæra í samræmi við eiginleika hráefnisins urðu íslensku peysurnar með sama lagi og erlendar fyrirmyndir hennar en mynstrin í sauðalitunum og öll stórgerðari. Það var vegna þess að lopinn er viðkvæmari en spunnið band og því var oftast prjónað úr þremur þráðum samtímis. Með því móti varð flíkin endingarbetri og hlýrri. Lopapeysan var orðin nokkuð fastmótuð í sinni hefðbundnu mynd seint á sjötta áratug tuttugustu aldar. Á þeim sjöunda varð hún vinsæl útflutningsvara en á áttunda áratugnum vildu hana færri en nú hefur hún náð fyrri vinsældum, ekki síst meðal erlendra ferðamanna. Peysan tekur sérkenni sín fyrst og fremst af ullinni en hún virðist eiga sér sterkar rætur í menningu núlifandi Íslendinga.
Skoða allar upplýsingar