1
/
af
1
645FDC4 - Ferðamannafrímerki VI
645FDC4 - Ferðamannafrímerki VI
Venjulegt verð
2.240 kr
Venjulegt verð
Söluverð
2.240 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Afþreying fyrir ferðamenn á Íslandi er þema ferðmannafrímerkjanna í ár. Hestaferðir fyrir börn og fullorðna eru skipulagðar af hestaleigum víða um land. Ferðirnar geta spannað allt frá nokkrum klukkutímum upp í margra daga en síðarnefndu ferðirnar eru ætlaðar vönu hestafólki. Markmið hestaferðanna er að bjóða ferðamönnum upplifun í íslenskri náttúru á íslenskum hestum. Íslenski hesturinn er þekktur víða um heim sem afbragðs fararskjóti. Íslenski hesturinn er smár vexti en afar sterkur, en hann er ekki af svokölluðu „smáhestakyni“ eins og Hjaltlandshesturinn og Fjarðahesturinn í Noregi.
Jöklaferðir hafa farið mjög vaxandi hin allra síðustu ár. Ferðast er um á snjóbílum, vélsleðum, jeppum eða í skipulögðum gönguferðum. Fjöldi gönguleiða af öllum erfiðleikastigum eru víða um land. Í byrjun júní 2015 voru opnuð ein stærstu manngerðu ísgöng í heimi í Langjökli, alls 550 m löng. Jöklaferðum fylgir alltaf nokkur áhætta. Fylgja þarf fyrirfram ákveðinni leið og þegar ferðast er í grennd við sprungusvæði skulu allir vera í beltum og bundnir í línu. Góður undirbúningar og vandað leiðarval dregur verulega úr áhættu á óhöppum. Ísklifur er hluti af jöklaferðum og þar er jökulexi, mannbroddar og hjálmur nauðsynlegur útbúnaður.
Skoða allar upplýsingar