1
/
af
1
643A - Fyrsti íslenski arkitektinn - Sjálflímandi
643A - Fyrsti íslenski arkitektinn - Sjálflímandi
Venjulegt verð
305 kr
Venjulegt verð
Söluverð
305 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Rögnvaldur Ágúst Ólafsson hefur verið kallaður fyrsti íslenski arkitektinn. Hann fæddist að Ytri Húsum í Dýrafirði árið 1874 og ólst upp á Ísafirði. Hann lauk prófi frá Lærða skólanum 1901 og sigldi til Hafnar til náms sama ár. Rögnvaldur var fyrsti Íslendingurinn sem fékkst einvörð- ungu við að teikna hús. Hann varð ráðunautur landsstjórnarinnar um opinberar byggingar árið 1906. Þótt starfstími hans yrði aðeins um 12 ár liggja eftir hann 30 kirkjur, 30 hús í Reykjavík og tugir annarra húsa víða um land. Hann teiknaði mörg af glæsilegustu timburhúsum sem reist voru í Reykjavík á fyrsta áratug aldarinnar. Mörg húsa Rögnvaldar eru íslensk útfærsla á sveitserstíl og ný-klassík. Eitt af þekktari verkum Rögnvaldar er Húsavíkurkirkja sem var vígð 1907. Nokkur önnur verk hans voru Vífilsstaðaspítali, reistur 1908, og Þingeyrarkirkja sem er einnig steinhús og í gotneskum stíl. Vífilsstaðahælið var hans stærsta verk og þar lést hann sjálfur úr berklaveiki árið 1917, aðeins 42 ára að aldri. Bók um Rögnvald Á. Ólafsson og verk hans kom út síðari hluta árs 2016. Höfundur er Björn G. Björnsson hönnuður.
Skoða allar upplýsingar
