Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

638A - Pourquoi-Pas? – 80 ára minning - Sjálflímandi - 2016

638A - Pourquoi-Pas? – 80 ára minning - Sjálflímandi - 2016

Venjulegt verð 720 kr
Venjulegt verð Söluverð 720 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Þann 16. september á þessu ári eru 80 ár liðin frá því að franska rannsóknaskipið Pourqoui-Pas? (Því ekki?) lenti í miklu og óvæntu óveðri út af Reykjanesi, hraktist upp í Borgarfjörð og fórst á skerinu Hnokka út af Álftanesi á Mýrum. Atburðarins er minnst sem eins hörmulegasta sjóslyss sem orðið hefur við Ísland. Leiðangursstjóri á skipinu var heimskautafarinn mikli dr. Jean-Baptiste Charcot. Alls létust 40 franskir vísindamenn og sjómenn. PourqouiPas? var að koma úr sínum þrettánda rannsóknaleiðangri til norðurskautssvæðisins þegar vélarbilun varð til þess að skipið kom til Reykjavíkur. Jean-Baptiste Charcot (1867–1936) var einn þeirra sem fyrstir könnuðu og kortlögðu haf- og landsvæðin umhverfis heimsskautin í byrjun síðustu aldar. Hann eignaðist fjölmarga vini hér á landi og strand Pourqoui-Pas? var mikil sorgarfrétt á Íslandi á sínum tíma. Þegar minningarsamkoma um hina látnu var haldin var öllum verslunum í Reykjavík lokað og er það einsdæmi að erlendum manni sé sýndur slíkur sómi. Serge Kahn ritaði ævisögu Charcots, „Jean-Baptiste Charcot – Heimskautafari, landkönnuður og læknir“ sem kom út í íslenskri þýðingu Friðriks Rafnssonar 2006 hjá JPV útgáfu. Þá er stórri sýningu í Háskólasetri Suðurnesja í Sandgerði ætlað að varpa einnig ljósi á ævi og starf dr. Charcots. Charcot verður minnst með málþingi í Háskóla Íslands í september n.k.
Skoða allar upplýsingar