1
/
af
1
636FDC1 - Lífríki hafsbotnsins við Ísland

Venjulegt verð
560 kr
Venjulegt verð
Söluverð
560 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Sæfíflar (Actinauge sp.) eru frumstæð fjölfruma sjávardýr af fylkingu holdýra. Hver sæfífill er stök lífvera. Sæfíflar lifa oftast nær á hörðum botni og fæðan er margvísleg. Sæfíflar eru mjög útbreiddir, allt frá grunnsævi og niður á 5000 metra dýpi. Í hlýjum sjó geta þeir verið litskrúðugir og stórir. Margar tegundir sæfífla er að finna á grunnsævi við Ísland. Sæfífillinn á frímerkinu var ljósmyndaður á 600 m dýpi í Háfadjúpi. Botndýrasamfélög eru stundum skoðuð með neðansjávarmyndavélum. Þetta á einkum við um rannsóknir á viðkvæmum búsvæðum.
Marflækja (Gorgonocephalus sp.) er botndýr af ættbálki skrápdýra (Echinodermata) og tilheyrir slöngustjörnum. Til skrápdýra teljast m.a. krossfiskar og ígulker. Fræðiheitið er dregið af grísku orðunum „gorgós“ sem þýðir ógnvekjandi og „cephalus“ sem þýðir höfuð. Á norsku heitir marflækjan Medúsuhöfuð og vísar til þjóðsagnarinnar um Medúsu drottningu sem hafði snáka í stað hárs og gat breytt mönnum í stein með augnaráði sínu. Heimkynni marflækjunnar í Norðaustur Atlantshafi, eru meðal annars við Ísland, Orkneyjar, Bretland og Noreg. Marflækjan á myndinni var ljósmynduð á um 900 m dýpi á Drekasvæðinu norðaustan við Ísland.
Skoða allar upplýsingar