Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

635A - RÚV – sjónvarp í 50 ár - Sjálflímandi

635A - RÚV – sjónvarp í 50 ár - Sjálflímandi

Venjulegt verð 350 kr
Venjulegt verð Söluverð 350 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
RÚV – sjónvarp, eina ríkisrekna sjónvarpsstöðin á Íslandi, hóf útsendingar þann 30. september 1966. Sjónvarpið er deild innan Ríkisútvarpsins, RÚV, sem einnig rekur þrjár útvarpsstöðvar. Þegar sjónvarpið hóf göngu sína var aðeins sent út tvisvar sinnum í viku en fljótlega var sent út alla daga nema fimmtudaga. Þann 1. október 1987 hóf sjónvarpið göngu sína alla daga vikunnar. Frá upphafi var áhersla lögð á vandaða fréttaþjónustu sjónvarps og batnaði hún til muna þegar erlendar sjónvarpsfréttir fóru að berast gegnum gervihnött. Það gerðist í fyrsta sinn í september árið 1981. Saga sjónvarps á Íslandi endurspeglar að verulegu leyti þjóðarsöguna á þeim 50 árum, sem liðin eru frá því að Ríkisútvarpið hóf sjónvarpssendingar. Þegar byrjað var að ræða um íslenskt sjónvarp um miðjan sjöunda áratuginn náðust sendingar frá sjónvarpi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. Í mars 1964 birtist ávarp sextíumenninganna svonefndu, allt þjóðkunnir einstaklingar, sem kröfðust þess að sendingar frá Keflavíkurstöðinni yrðu takmarkaðar við herstöðina. Sama ár var ákveðið að stofna íslenskt sjónvarp á vegum Ríkisútvarpsins sem ætíð hefur haft innlenda dagskrárgerð að leiðarljósi
Skoða allar upplýsingar