Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

634FDC4 - SEPAC - Árstíðir

634FDC4 - SEPAC - Árstíðir

Venjulegt verð 6.880 kr
Venjulegt verð Söluverð 6.880 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
SEPAC-útgáfan er sameiginleg útgáfa þrettán eyríkja og smáþjóða: Íslands, Færeyja, Álandseyja, Grænlands, Mónakó, Lichtenstein, Lúxemborg, Gíbraltar, Mön, Guernsey, Jersey, Möltu og Vatíkansins. SEPAC frímerkin hafa komið út á hverju ári undanfarin ár með mismunandi þemu en sameiginlegt þema SEPAC frímerkjanna að þessu sinni er árstíðirnar. Á fjögurra frímerkja röðinni, sem nú kemur út, er frímerki vorsins tileinkað SEPAC-útgáfunni. Árstíðaskil eru yfirleitt nokkuð skörp á norðlægum breiddargráðum og breytingar á veðurfari og í náttúrunni sjálfri við árstíðaskiptin eru áhrifamiklar og heillandi. Á vorin hækkar sólin á lofti og sumarið kemur með birtu og blómaangan. Litirnir í náttúrunni á haustin eru margvíslegir og fagrir. Farfuglarnir kveðja og æfa listflug sitt síðustu dagana fyrir brottför. Vetrinum geta fylgt váleg veður, snjórinn klæðir landið og norðurljósin blika á himninum á heiðskírum vetrarnóttum. Í stjarnfræðilegum skilningi verða árstíðaskipti við sólstöður eða jafndægur. Þannig hefst sumar við sumarsólstöður, vetur við vetrarsólstöður en haust við haustjafndægur og vor við vorjafndægur.
Skoða allar upplýsingar