1
/
af
1
633A - Eldgos í Holuhrauni - Sjálflímandi
633A - Eldgos í Holuhrauni - Sjálflímandi
Venjulegt verð
350 kr
Venjulegt verð
Söluverð
350 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Frímerki tileinkað eldgosinu í „Holuhrauni“ var á útgáfuáætlun 2015. Útgáfunni varð hins vegar ítrekað að fresta því endanlegt opinbert nafn gossins lá ekki fyrir af hálfu réttra yfirvalda, en nafnið kemur að sjálfsögðu fram á frímerkinu. Mikil umbrotahrina hófst þann 16. ágúst 2014 í Bárðarbungu og hófst eldgos í Holuhrauni norðan við Dyngjujökul 31. ágúst. Áður varð gos í jöklinum sem þó náði ekki að bræða sig í gegnum ísinn. Lítið gos varð í Holuhrauni 29. ágúst sem stóð í nokkrar klukkustundir. Mikil jarðskjálftavirkni var í eldstöðvakerfi Öskju samhliða umbrotum í Bárðarbungu. Ekkert kvikuflæði er lengur til yfirborðs í Holuhrauni og eldgosinu því lokið. Gosið stóð því í rétt tæpt hálft ár. Óvanalegt er að stök gos standi svo lengi þó goshrinur eins og t.d. Kröflueldar hafi staðið yfir mikið lengur eða í 9 ár. Gosið skilaði um 1,4 rúmkílómetrum af hrauni sem þekur um 85 ferkílómetra. Er þetta því langstærsta hraungos á Íslandi frá Skaftáreldum á 18. öld og hefur reyndar ekkert eldgos síðan þá skilað eins miklu magni af gosefnum. Það verður að teljast mikil heppni að þessi umbrot þróuðust eins og þau gerðu með fremur rólegu gosi á íslausu landi víðsfjarri mannabyggðum.
Skoða allar upplýsingar
