Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

617A - Hið íslenska biblíufélag 200 ára

617A - Hið íslenska biblíufélag 200 ára

Venjulegt verð 305 kr
Venjulegt verð Söluverð 305 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.

Hið íslenska Biblíufélag var stofnað á prestastefnu í Reykjavík 10. júlí 1815. Það verður 200 ára í ár og er elsta starfandi félag landsins. Markmið félagsins hefur alla tíð verið að vinna að útgáfu, útbreiðslu og notkun Biblíunnar. Félagið tekur þátt í starfi Sameinuðu Biblíufélaganna, United Bible Societies, UBS og nýtur einnig velvilja Biblíufélaganna á Norðurlöndunum.
Ebenezer Henderson átti frumkvæðið að stofnun félagsins og naut hann stuðnings áhrifamanna. Frá upphafi var félagið algjörlega á íslenskum höndum. Þessir menn hljóta því að teljast meðstofnendur þess og má raunar skipa þeim í tvo flokka. Í þrengri hópnum eru þeir embættismenn kirkju og þjóðlífs, sem Henderson ræddi við fyrir stofnfundinn. En í hinum flokknum eru svo fulltrúar þjóðarinnar eða kirkjunnar 19 eða 22 talsins, er sátu stofnfundinn og léðu málefninu stuðning sinn með því að undirrita stofnskjal félagsins. Stofnun Hins íslenska Biblíufélags er talinn einn merkasti atburðurinn í íslensku kirkjulífi á fyrsta aldarfjórðungi 19. aldar.

Skoða allar upplýsingar