Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

590B - Vitar III - Skarðsfjöruviti - Sjálflímandi

590B - Vitar III - Skarðsfjöruviti - Sjálflímandi

Venjulegt verð 560 kr
Venjulegt verð Söluverð 560 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.

 

Á Skarðsfjöru á Meðallandssandi var reist 19 m há járngrind árið 1959. Þessi viti var útbúinn með 3 m háu áttstrendu sænsku ljóshúsi og díoptrískri 500 mm linsu og gasljóstækjum sem áður voru í Galtarvita. Árið 1968 var byggt vélahús úr steinsteypu nærri vitanum og þar komið fyrir ljósavélum og tækjum fyrir radíóvita. Vitinn var raflýstur sama ár. Radarsvari var látinn á vitann árið 1973 en GPS-leiðrétting og sjálfvirk veðurathugunarstöð árið 1993. Flugmálastjórn Íslands tók við rekstri radíóvitans 1994. Árið 1997 var tekið inn rafmagn frá rafveitu. Vitann hannaði Steingrímur Arason verkfræðingur. 

 

Skoða allar upplýsingar