1
/
af
1
576A - Sveppir VI - Móhnefla
576A - Sveppir VI - Móhnefla
Venjulegt verð
305 kr
Venjulegt verð
Söluverð
305 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Móhnefla (Russula xerampelina) er stórvaxinn sveppur, með rauðbrúnni hettu. Af eldri sveppum er yfirleitt allsterk síldarlykt, en bragðið er milt. Móhnefla vex í grasivöxnu skóglendi og mólendi. Hún er algeng um land allt. Hér er um tegundahóp að ræða sem einkennist aðallega af lyktinni og kallast ,síldhneflur‘. Móhnefla, sem er aðaltegundin, er talin barrskógasveppur erlendis, en vex hér oftast í birkiskógum gjarnan tengd rjúpnalaufi. Allar síldhneflur eru sæmilegir matsveppir á meðan þær eru ungar en holdið maðkar og morknar fljótt og lyktin eykst.
