Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

549B - Evrópufrímerki 2011 - Alþjóðlegt ár skóga

549B - Evrópufrímerki 2011 - Alþjóðlegt ár skóga

Venjulegt verð 460 kr
Venjulegt verð Söluverð 460 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Sameinuðuþjóðirnar hafa ákveðið að árið 2011 skuli vera alþjóðlegt ár skóga. Fyrra frímerkið sýnir þversnið af trjábol og er táknrænt fyrir skóginn sem auðlind, þ.e. sem framleiðanda trjáviðar. Seinna frímerkið sýnir nærmynd af laufblaði og táknar vistkerfisþjónustu sem skógar veita, sérstaklega þá að binda kolefni úr andrúmsloftinu. Nútíma Íslendingar hafa tilhneigingu til að líta á skóg sem þátt í landslagi en síður sem auðlind. Skógar fortíðar framleiddu byggingarefni, eldivið, viðarkol til járnsmíða og fóður fyrir búfé. Með nútíma skógrækt eru Íslendingar að byggja upp sína eigin skógarauðlind á ný. Skógar veita einnig margskonar vistkerfisþjónustu, svo sem að vernda vatn og jarðveg og vera búsvæði fyrir fjölda lífvera. Laufblöð og nálar draga koltvísýring (CO2) úr andrúmslofti og þannig hjálpa skógar til við að draga úr gróðurhúsáhrifum í andrúmsloftinu.
Skoða allar upplýsingar