Farðu í vöruupplýsingar
1 af 1

547D - Fuglar á válista - Gargönd

547D - Fuglar á válista - Gargönd

Venjulegt verð 360 kr
Venjulegt verð Söluverð 360 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn.
Alþjóðanáttúruverndarsjóðurinn, World Wide Fund for Nature, verður 50 ára á þessu ári. Í tilefni þess gefur Íslandspóstur úr fjögur frímerki þar sem myndefnin eru fuglar á válista. Íslenskur válisti yfir fugla var fyrst gefinn út árið 2000 og voru þá 32 fuglategundir á listanum, eða 42% íslenskra varpfugla. Ekki eru allar tegundir á válista í bráðri hættu. Gargönd er fyrst talin hafa orpið á Íslandi á 19. öld. Varpstofninn er metinn 200–300 pör, aðallega í kringum Mývatn. Gargönd er farfugl en megin vetrarstöðvar hennar eru á Írlandi. Hún er alfriðuð hérlendis.
Skoða allar upplýsingar