1
/
af
1
519A - Íslenskar kynjaskepnur - Hrosshvalur
519A - Íslenskar kynjaskepnur - Hrosshvalur
Venjulegt verð
80 kr
Venjulegt verð
Söluverð
80 kr
Einingaverð
/
á
Skattur innifalinn.
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Í íslenskum þjóðsögum má finna fjölda frásagna um furðuverur í lofti, á láði og í legi. Ein grein þjóðsagna er „Sæbúar og vatna” og er þar fjallað um verur í sjó og vötnum. Ein þessara furðuvera er hrosshvalur sem dregur nafn af miklum rauðum hárflóka með beinkömbum í og svo tagli. Hrosshvalurinn er ljós með brúnleitan söðullagaðan flekk á baki og dökka stjörnu í enni sem minnir á auga. Í bókinni „Íslenskar kynjaskepnur” eru rifjaðar upp allar helstu þjóðsögur og sagnir um þessi kynjadýr. Frímerkjaörkin, „Kynjaskepnur í íslenskum þjóðsögum“ sýnir tíu þessara furðuvera.
