{"product_id":"690b-jolafrimerki-2019-gomul-jolatre-sjalflimandi-50g-til-evropu","title":"690B - Jólafrímerki 2019 - Gömul jólatré - Sjálflímandi - 50g til Evrópu","description":"Skreyting jólatrésins er mikilvægur og ánægjulegur undirbúningur jólanna og bæði börn og fullorðnir njóta þess að prýða það með jólaskrauti í margskonar litum. Fyrstu jólatrén komu í íslenska kaupstaði um miðja 19. öld, og þá aðallega á heimili danskra fjölskyldna. Fæstir landsmenn áttu þess kost að eignast grenijólatré á þeim tíma en nokkrir leystu þó málin með því að smíða sér gervijólatré og klæða með sortulyngi, beitilyngi eða eini. \u003cbr\u003e\u003cbr\u003eMyndefni frímerkjanna eru heimasmíðuð íslensk jólatré, annað frá Hruna í Hrunamannahreppi en hitt frá Laugardælum í Flóahreppi. Jólatréð frá Hruna (50g innanlands) er talið elsta varðveitta jólatré á Íslandi. Það er frá 1873, einn metri á hæð, smíðað úr tré og grænmálað. Tréð er með 38 trépílum sem er stungið inn í stofninn. Greinarnar voru vafðar með sortulyngi og kerti á hverri grein. Tréð er úr búi séra Steindórs Briem í Hruna en smiðurinn var var Jón Jónsson bóndi í Þverspyrnu. Byggðasafn Árnesinga eignaðist tréð árið 1955 og hefur það lengi verið hluti af jólasýningu Hússins á Eyrarbakka. \u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJólatréð frá Laugardælum (50g til Evrópu) er frá því um miðja síðustu öld. Það er með renndum 63 cm stofni og fæti ásamt stílfærðum greinum fyrir kerti. Tréð fannst á kirkjulofti Laugardælakirkju þegar hún var rifin. Vitað er að þjóðhagasmiðurinn Gísli Brynjólfsson (1871-1961) á Haugi í Gaulverjabæ smíðaði jólatré með þessu lagi og bendir því allt til að hann hafi einnig smíðað þetta jólatré sem var lengi notað í Laugardælakirkju.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45337018728770,"sku":"","price":415.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/690b.png?v=1686886883","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/690b-jolafrimerki-2019-gomul-jolatre-sjalflimandi-50g-til-evropu","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}