{"product_id":"673fdcs-storkostlegt-utsyni-sepac-frimerki","title":"673FDCS - Stórkostlegt útsýni – Sepac frímerki","description":"Sameiginlegt þema þeirra 13 landa sem gefa út Sepac frímerki, er að þessu sinni „stórkostlegt útsýni“. Myndefni íslenska frímerkisins er Vestrahorn, 454 m hátt fjall á Suðausturlandi. \u003cbr\u003e\u003cbr\u003eVestrahorn er hömrum girt og svipmikið. Er það eitt af fáum fjöllum á Íslandi, sem eru nær eingöngu úr gabbró en einnig er nokkuð um granofýr í því. Fjallið stendur við opið úthaf um 10 km fyrir austan Höfn í Hornafirði. Erfið og ógreiðfær gönguleið liggur milli fjalls og fjöru við Vestrahorn. Vestan við Vestrahorn gengur Stokksnes í sjó fram og er mikið um sel á skerjunum fyrir utan ströndina þar. Vestrahorn tilheyrir fjalllendinu utan Skarðsdals en það fjalllendi er á náttúruminjaskrá. Það er fagurt fjallendi með margvíslegum bergtegundum. Gabbró-granófýrið er um 6,6 milljón ára gamalt. Vestrahorn er á mörkum á landnámi landnámsmannanna Þorsteins leggs og Hrollaugs Rögnvaldssonar. Hrollaugur var sonur jarlsins á Mæri í Noregi og bróðir Göngu-Hrólfs. Hann kom fyrst til hafnar í Reykjavík en fann öndvegissúlur sínar reknar á land við Vestrahorn og settist þar að.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336985469250,"sku":"","price":345.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/673fdcs.png?v=1686886664","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/673fdcs-storkostlegt-utsyni-sepac-frimerki","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}