{"product_id":"670a-haskolinn-a-bifrost-samvinnuskolinn-100-ara-sjalflimandi-50g-innanlands","title":"670A - Háskólinn á Bifröst\/ Samvinnuskólinn 100 ára- Sjálflimandi - 50g innanlands","description":"Háskólinn á Bifröst á rætur að rekja til Samvinnuskólans sem var stofnaður árið 1918 í Reykjavík og hóf starfsemi í desember það ár. Fyrsti skólastjóri hans var Jónas Jónsson frá Hriflu. Í dag er Háskólinn á Bifröst fjölbreyttur háskóli, sem býður nemendum sínum upp á fræðslu, þekkingu og þjálfun í viðskiptafræði og viðskiptalögfræði sem og heimspeki, hagfræði og stjórnmálafræði. Sumarið 1955 var Samvinnuskólinn fluttur að Bifröst í Borgarfirði og hefur verið starfræktur þar síðan. Jafnframt var skólinn endurmótaður og endurskipulagður frá grunni sem heimavistarskóli. Nú hefur risið myndarlegt háskólaþorp á Bifröst og hafa íbúar þess náð að vera 700 talsins þegar mest var. Samvinnuskólinn, Samvinnuháskólinn, Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn á Bifröst eru ein og sama stofnunin. Skólinn hóf kennslu á meistarastigi sumarið 2003. Nemendafjöldi skólans hefur vaxið hratt á síðustu árum. Árið 1998 voru um 120 nemendur skráðir í skólann en árið 2017 stunduðu alls 850 manns nám við skólann. Á vorönn 2018 eru um 470 nemendur skráðir í skólann. Skólinn skiptist í fimm námsdeildir: viðskiptadeild, lagadeild, félagsvísindadeild, frumgreinadeild og símenntunardeild.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336981307714,"sku":"","price":350.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/670a.png?v=1686886632","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/670a-haskolinn-a-bifrost-samvinnuskolinn-100-ara-sjalflimandi-50g-innanlands","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}