{"product_id":"664a-siglufjordur-100-ara-kaupstadarafmaeli-sjalflimandi-50g-innanlands","title":"664A - Siglufjörður 100 ára kaupstaðarafmæli - Sjálflímandi - 50g innanlands","description":"Siglufjörður er bær sem stendur við samnefndan fjörð á Norðurlandi. Árið 1614 var ný kirkja reist á Hvanneyri við Siglufjörð. Verslun hófst í hreppnum 1788 og Siglufjörður varð að löggiltum verslunarstað árið 1818. Einni öld síðar, árið 1918, fékk hreppurinn kaupstaðarréttindi og hét eftir það Siglufjarðarkaupstaður. Í bænum bjuggu 1214 manns 1. janúar 2010, sem er mikil fækkun frá blómaskeiði bæjarins á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar þegar hann var fimmti stærsti kaupstaður landsins. Blómaskeið Siglufjarðar var afleiðing mikilla síldveiða fyrir Norðurlandi sem hófust árið 1903. Siglfirðingar minnast þessa tímabils enn í dag og halda árlega bæjarhátíðina „Síldarævintýrið á Sigló“. Í janúar 2006 samþykktu Siglfirðingar og Ólafsfirðingar í kosningum að sameina bæjarfélögin tvö. Sameiningin gekk í gildi 11. júní 2006 og sveitarfélagið fékk nafnið Fjallabyggð. Mikil menningarstarfsemi er á Siglufirði. Þar er rekið Þjóðlagasetur og haldin árleg þjóðlagahátíð. Síldarminjasafnið er eitt virtasta safn landsins og hefur hlotið margskonar verðlaun og viðurkenningar, m.a. evrópsku safnverðlaunin 2004. Ljóðasetur Íslands tók til starfa á Siglufirði árið 2011.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336973541698,"sku":"","price":350.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/664a.png?v=1686886563","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/664a-siglufjordur-100-ara-kaupstadarafmaeli-sjalflimandi-50g-innanlands","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}