{"product_id":"653fdc4-villtur-islenskur-grodur-ii","title":"653FDC4 - Villtur íslenskur gróður II","description":"Veggjaglæða (Xanthoria parietina) er algeng flétta þar sem úthafsloftslag er mest á landinu. Hún er mjög útbreidd á Suður- og Vesturlandi. Hún vex á klettum, steyptum veggjum og stundum á trjábolum. Í fuglabjörgum getur hún litað heila klettaveggi. Veggjaglæðan er stór, oft 6-10 cm í þvermál, og þekkist best frá öðrum glæðum á greinilega blaðkenndum jöðrum sem auðvelt er að losa frá undirlaginu. Hún er mjög sjaldgæf á Norðurlandi.\u003cbr\u003e\u003cbr\u003eSkeljaskóf (Placopsis gelida) er algeng flétta um allt land. Hún myndar sambýli með grænþörungi. Skeljaskóf var ein þriggja fyrstu fléttanna til að finnast í Surtsey eftir að eyjan myndaðist. Hún er algeng hvarvetna á landinu þar sem raka úthafsloftslagsins nýtur við en er sjaldgæf inn til landsins fyrir norðan þar sem loftslag er landrænna. Þar finnst hún hins vegar víða á háfjöllum þar sem þokur eru tíðari en á láglendi. Skeljaskófin vex á steinum, bæði basalti og móbergi, oft á smásteinum sem liggja á jörðinni.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336943493442,"sku":"","price":2840.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/653_fdc4.png?v=1686886413","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/653fdc4-villtur-islenskur-grodur-ii","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}