{"product_id":"648fdc4-althjodlegt-ar-sjalfbaerrar-ferdathjonustu","title":"648FDC4 - Alþjóðlegt ár sjálfbærrar ferðaþjónustu","description":"Árið 2017 er ár „sjálfbærrar ferðaþjónustu“ samkvæmt ákvörðum Sameinuðu þjóðanna. Sjálfbær ferðaþjónusta er skilgreind sem sú þróun eða starfsemi í ferðaþjónustu sem ber virðingu fyrir umhverfinu og tryggir verndun náttúrulegra og menningarlegra auðlinda til langs tíma. Bláa lónið á Reykjanesskaganum myndaðist af affallsvatni frá Hitaveitu Suðurnesja í kjölfar starfsemi hennar í Svartsengi við Grindavík árið 1976. Þegar fólk fór að baða sig í lóninu kom í ljós að það hafði jákvæð áhrif á húð- sjúkdóminn psorisasis. Lónið hefur með tímanum orðið einn fjölsóttasti ferðamannastaður á Íslandi. Vistkerfi þess er eitt sinnar tegundar í heiminum. Hitastigið í lóninu er 37-39°C og það endurnýjar sig á 40 stunda fresti. \u003cbr\u003e\u003cbr\u003eJarðböðin við Mývatn eru staðsett í Jarðbaðshólum nálægt Reykjahlíð. Þar hafa heit jarðböð verið stunduð til heilsubótar frá landnámsöld. Boðið er upp á náttúruleg gufuböð, baðlón með heitu hveravatni og heitan pott. Mývatn er fjórða stærsta stöðuvatn landsins og heimsfrægt fyrir fjölbreytt náttúrufar og fuglalíf. Jarðmyndanir eru mjög fjölbreytilegar og víðast hiti í jörðu, enda er svæðið innan hins virka eldgosabeltis og eru eldgos tíð, hið síðasta árið 1984.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336932614466,"sku":"","price":2000.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/648fdc4.png?v=1686886344","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/648fdc4-althjodlegt-ar-sjalfbaerrar-ferdathjonustu","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}