{"product_id":"646fdcs-evropufrimerki-2017","title":"646FDCS - Evrópufrímerki 2017","description":"Samkvæmt ákvörðun PostEurop, sambands opinberra póstrekenda í Evrópu, eru kastalar sameiginlegt þema Evrópufrímerkjanna í ár. Kastali er víggirt mannvirki, yfirleitt torsótt vegna staðsetningar sinnar. Flestir kastalar á Evrópu á miðöldum voru heimili hefðarfólks og konungborinna og voru byggðir til að standast áhlaup óvina, ásamt því að vera mikilvægt stöðutákn. Margir kastalar álfunnar eru enn í notkun, flestir sem söfn en nokkrir sem bústaðir, jafnvel heimili afkomenda þeirra sem þá byggðu. Kastalar voru aldrei reistir á Íslandi að undanskildum loftkastölum og snjókastölum, sem eru þema íslensku Evrópumerkjanna. Víða í íslenskri náttúru má þó sjá kastalaform og í frægu kvæði Jónasar Hallgrímssonar um fjallið Skjaldbreiður segir meðal annars: „Búinn er úr bláastorku \/ bergkastali frjálsri þjóð.“ Bergkastalalíkingin vísar til forma sem sjá má í náttúrunni. Hún gerir landslagið að sýnilegri byggingu og talar til augnanna. Víða í íslenskri náttúru má sjá margvísleg form sem kalla mætti náttúrlega íslenska „kastala“. Má þar til dæmis nefna Dimmuborgir við Mývatn, Eldborg á Mýrum og Borgarvirki í Vestur-Húnavatnssýslu.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336937562434,"sku":"","price":975.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/646fdcs.png?v=1686886373","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/646fdcs-evropufrimerki-2017","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}