{"product_id":"635fdc4-ruv-sjonvarp-i-50-ar","title":"635FDC4 - RÚV – sjónvarp í 50 ár","description":"RÚV – sjónvarp, eina ríkisrekna sjónvarpsstöðin á Íslandi, hóf útsendingar þann 30. september 1966. Sjónvarpið er deild innan Ríkisútvarpsins, RÚV, sem einnig rekur þrjár útvarpsstöðvar. Þegar sjónvarpið hóf göngu sína var aðeins sent út tvisvar sinnum í viku en fljótlega var sent út alla daga nema fimmtudaga. Þann 1. október 1987 hóf sjónvarpið göngu sína alla daga vikunnar. Frá upphafi var áhersla lögð á vandaða fréttaþjónustu sjónvarps og batnaði hún til muna þegar erlendar sjónvarpsfréttir fóru að berast gegnum gervihnött. Það gerðist í fyrsta sinn í september árið 1981. Saga sjónvarps á Íslandi endurspeglar að verulegu leyti þjóðarsöguna á þeim 50 árum, sem liðin eru frá því að Ríkisútvarpið hóf sjónvarpssendingar. Þegar byrjað var að ræða um íslenskt sjónvarp um miðjan sjöunda áratuginn náðust sendingar frá sjónvarpi varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli til Reykjavíkur. Í mars 1964 birtist ávarp sextíumenninganna svonefndu, allt þjóðkunnir einstaklingar, sem kröfðust þess að sendingar frá Keflavíkurstöðinni yrðu takmarkaðar við herstöðina. Sama ár var ákveðið að stofna íslenskt sjónvarp á vegum Ríkisútvarpsins sem ætíð hefur haft innlenda dagskrárgerð að leiðarljósi","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45336913969474,"sku":"","price":740.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/635fds4.png?v=1686886220","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/635fdc4-ruv-sjonvarp-i-50-ar","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}