{"product_id":"634fdc4-sepac-arstidir","title":"634FDC4 - SEPAC - Árstíðir","description":"SEPAC-útgáfan er sameiginleg útgáfa þrettán eyríkja og smáþjóða: Íslands, Færeyja, Álandseyja, Grænlands, Mónakó, Lichtenstein, Lúxemborg, Gíbraltar, Mön, Guernsey, Jersey, Möltu og Vatíkansins. SEPAC frímerkin hafa komið út á hverju ári undanfarin ár með mismunandi þemu en sameiginlegt þema SEPAC frímerkjanna að þessu sinni er árstíðirnar. Á fjögurra frímerkja röðinni, sem nú kemur út, er frímerki vorsins tileinkað SEPAC-útgáfunni. Árstíðaskil eru yfirleitt nokkuð skörp á norðlægum breiddargráðum og breytingar á veðurfari og í náttúrunni sjálfri við árstíðaskiptin eru áhrifamiklar og heillandi. Á vorin hækkar sólin á lofti og sumarið kemur með birtu og blómaangan. Litirnir í náttúrunni á haustin eru margvíslegir og fagrir. Farfuglarnir kveðja og æfa listflug sitt síðustu dagana fyrir brottför. Vetrinum geta fylgt váleg veður, snjórinn klæðir landið og norðurljósin blika á himninum á heiðskírum vetrarnóttum. Í stjarnfræðilegum skilningi verða árstíðaskipti við sólstöður eða jafndægur. Þannig hefst sumar við sumarsólstöður, vetur við vetrarsólstöður en haust við haustjafndægur og vor við vorjafndægur.","brand":"Íslandspóstur","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":45337067585858,"sku":"","price":6880.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/products\/634fdc4_vef.png?v=1686887263","url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/products\/634fdc4-sepac-arstidir","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}