{"title":"Frímerki 2026","description":"\u003cp\u003eFrímerki gefin út árið 2026\u003c\/p\u003e","products":[{"product_id":"709a-yfirprentun","title":"709A - Yfirprentun- Sveppir VI - Móhnefla","description":"\u003cp\u003eMóhnefla (Russula xerampelina) er stórvaxinn sveppur, með rauðbrúnni hettu. Af eldri sveppum er yfirleitt allsterk síldarlykt, en bragðið er milt. Móhnefla vex í grasivöxnu skóglendi og mólendi. Hún er algeng um land allt. Hér er um tegundahóp að ræða sem einkennist aðallega af lyktinni og kallast ,síldhneflur‘. Móhnefla, sem er aðaltegundin, er talin barrskógasveppur erlendis, en vex hér oftast í birkiskógum gjarnan tengd rjúpnalaufi. Allar síldhneflur eru sæmilegir matsveppir á meðan þær eru ungar en holdið maðkar og morknar fljótt og lyktin eykst.\u003c\/p\u003e","brand":"Pósturinn","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52933349441858,"sku":null,"price":530.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/files\/01-709A.png?v=1776354940"},{"product_id":"708a-yfirprentun","title":"708A - Yfirprentun - Amnesty International 50 ára","description":"\u003cp\u003eAmnesty International eru alþjóðleg samtök sem berjast fyrir mannréttindum um allan heim. Samtökin voru stofnuð árið 1961 af breskum lögfræðingi, Peter Benenson. Samtökin hafa enga skoðun á pólitík, trúmálum eða hugmyndafræði. Árið 1963 urðu samtökin fyrst alþjóðleg. Samtökin fengu friðarverðlaun Nóbels árið 1977. Merki þeirra er gaddagirðing sem umlykur kerti og var hannað af Diana Redhouse. Upphaf Amnesty varð þegar Benenson hóf átak fyrir mannréttindum 1961. Fyrsta mál hans var fangelsisvist portúgalskra nemenda sem höfðu verið fangelsaðir fyrir mótmæli í þágu frelsis. Á sama áratug fékk Amnesty ráðgjafarhlutverk hjá UNESCO og hefur unnið náið með Sameinuðu þjóðunum síðan þá. Íslandsdeild Amnesty International var formlega stofnuð í Norræna húsinu 15. september árið 1974. Amnesty International hefur stuðlað að aukinni þekkingu á mannréttindum hér á landi og haft jákvæð áhrif á líf fjölda fórnarlamba mannréttindabrota. Deildin byggir allt sitt starf á óhlutdrægni, sjálfstæði og alþjóðlegri samstöðu.\u003c\/p\u003e","brand":"Pósturinn","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":52933467275586,"sku":null,"price":530.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0725\/1617\/4146\/files\/01-708A_80bfbd76-6d64-4f42-a048-9dd814476a39.png?v=1776358264"}],"url":"https:\/\/posturinn-vefverslun.myshopify.com\/collections\/frimerki-2026.oembed","provider":"Pósturinn","version":"1.0","type":"link"}